Myndir frá aðgerðum í Grindavík í síðustu viku

Eins og kom fram í fréttum á föstudagskvöld tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum þá ákvörðun að hætta leit að manninum sem féll í sprungu í Grindavík á miðvikudagsmorgun. Ekki var talið forsvaranlegt að halda leit áfram við þær aðstæður sem ríktu og stofna þannig fleiri mannslífum í hættu. Í kjölfarið var nafn mannsins sem leitað var að birt, en hann heitir Lúðvík Pétursson, fimmtudagur að aldri. „Slysavarnafélagið Landsbjörg sendir aðstandendum hans dýpstu samúðarkveðjur. Það er björgunaraðilum afar þungbært að þurfa að hverfa frá leitinni án árangurs,“ sagði í tilkynningu.

Myndir frá aðgerðum í Grindavík í síðustu viku - Skessuhorn