Ný gossprunga opnaðist rétt við efstu hús í Grindavík

Nú í hádeginu opnaðis ný gossprunga einungis nokkrum tugum norðan við efstu hús í hinu nýja Hópshverfi í Grindavík. Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur, sagði nú rétt í þessu að Grindavík væri mikið hættusvæði eins og stendur. Kvika sé að finna sér leið upp á yfirborðið sem hafi áhrif á allt svæðið. Meðfylgjandi er skjáskot úr vefmyndavél sem mbl.is beinir að svæðinu. Neðst sést hraunelfur frá gosinu sem hófst klukkan 8 í morgun og hefur náð yfir hluta Grindavíkurvegar. Fjær sést nýja sprungan sem er einungis nokkrum tugum metra ofan við efstu hús i Hópshverfi.

Uppfært kl. 12:57:

Nýja gossprungan hefur verið að lengjast og í átt að Hópshverfinu. Nú laust fyrir klukkan 13 virðist sem hraun sé við það að ná veggjum efsta húss í hverfinu. Þá er hraunelfurinn frá fyrsta gosinu í morgun nú búinn að ná yfir Grindavíkurveg og ljóst að hitaveitulögnin mun rofna.

Ný gossprunga opnaðist rétt við efstu hús í Grindavík - Skessuhorn