
Söngbræður fylltu Þinghamar að venju
Síðastliðið laugardagskvöld bauð karlakórinn Söngbræður til árlegrar söng- og matarveislu í félagsheimilinu Þinghamri í Borgarfirði. Uppselt var á samkomuna og komust raunar færri að en vildu, þrátt fyrir að þetta sé stærsta félagsheimili héraðsins. Dagskráin hófst og endaði með söng undir stjórn Viðars Guðmundssonar sem kynnti atriðin og fór með gamanmál. Einsöngvarar stigu fram og létu ljós sitt skína með kórnum og spilað var undir á píanó og harmonikku. Veisluföng voru þau sömu og venja er hjá kórfélögum; saltað hrossakjöt, svið og tilheyrandi meðlæti. Var þessu öllu gerð góð skil. Við lok samkomunnar var síðan boðið upp á fjöldasöng. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tilefni og fá að tala sínu máli.