Hér má glöggt sjá hversu nærri byggð hraun rennur. Ljósm. Almannavarnadeild RLS

Eldgos hófst norðan við Grindavík í morgun

Laust fyrir klukkan átta í morgun hófst eldgos úr um hálfs kílómetra langri gossprungu norðan við Grindavík. Sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir eldgosi og síðla í nótt hófst rýming á Grindavíkurbæ og var henni lokið tímanlega áður en gos hófst. Engum hefur því orðið meint af sökum jarðhræringanna nú. Um klukkan 3 í nótt hófst áköf skjálftahrina frá svæðinu við Sundhnjúksgíg og náði óróinn undir sjálfan Grindavíkurbæ. Um tíma var óttast að hraun kæmi upp í byggð, en það gerðist ekki en kom upp beggja vegna nýs varnargarðs norðan við bæinn og hraunelfurinn mjakast í átt til byggðar í Grindavík. Nú á hraunið eftir um 400-450 metra að fyrstu húsum, nyrst í bænum. Sérfræðingar telja að mögulega taki það allt að sólarhring að ná til byggðarinnar. Almannavarnir voru virkjaðar á neyðarstig í nótt.

Til marks um kraftana í jarðskorpunni á þessum slóðum hafa sérfræðingar reiknað með að fjallið Þorbjörn hafi í jarðhræringunum færst um 20 cm til vesturs. Nýjar sprungur hafa auk þess verið að opnast í Grindavík og þar er nú metið hættulegt að vera. Til stóð að klukkan 19 í kvöld hæfist hið minnsta þriggja vikna rýming í Grindavík, en henni hefur verið flýtt í ljósi aðstæðna.

Í morgun tókst að forða stórvirkum vinnuvélum sem notaðar hafa verið til að byggja upp varnargarðinn norðan Grindavíkur. Það stóð þó verulega tæpt eins og sjá mátti í vefmyndavélum sem beint er að gosinu en myndir úr þeim eru sjáanlegar á fréttamiðlum m.a. visir.is og ruv.is

Gosið við Grindavík sést vel frá vestanverðu landinu, betur þó áður en birta tók í morgun. Gosmökk leggur upp í loftið og þéttist þar í köldu lofti sem leikur um svæðið í hægum vindi.

Fyrir hönd íbúa á Vesturlandi sendir Skessuhorn hlýjar kveðjur til íbúa í Grindavík, viðbragðsaðila og þeirra sem standa í eldlínunni, jafnvel bókstaflega.

Gossprungan er beggja vegna varnargarðsins sem unnið hefur verið við undanfarna daga.

Eldgos hófst norðan við Grindavík í morgun - Skessuhorn