
Styrkjum úthlutað til nýsköpunar í skólastarfi
Mennta- og barnamálaráðuneytið úthlutaði í síðustu viku styrkjum til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefna á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla auk frístundastarfs. Um nýja tímabundna styrki er að ræða til að innleiða aðgerð-2 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um aukna skólaþróun um allt land. „Markmið styrkja er að stuðla að öflugri skólaþróun með fjölbreyttum verkefnum sem kennarar, skólastjórnendur og annað fagfólk og nemendur hafa frumkvæði að og deila í kjölfarið með öðrum. Horft er til heildarnálgunar á menntun og víðtækrar samvinnu innan skóla og milli skóla og annarra stofnana, auk samvinnu heimila og skóla. Styrkjunum er ætlað að styðja við nýja nálgun og vera hreyfiafl framfara í skóla- og frístundastarfi við innleiðingu menntastefnu, jafna tækifæri nemenda um land allt og hvetja skóla til nýsköpunar á sviði skólaþróunar,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.