Fréttir

true

Jólagleði á Hvanneyri á LAUGARDAGINN

Íbúasamtökin á Hvanneyri standa á laugardaginn fyrir árlegri jólagleði í þorpinu á fyrsta helgi í aðventu. Það skal áréttað hér að í frétt sem birt er í Skessuhorni, sem kom út í dag, er missagt að jólagleðin sé á sunnudaginn, en hún verður semsé laugardaginn 2. desember kl. 13-17. Auglýsingu um viðburðinn er jafnframt að…Lesa meira

true

„Komdu í bingó vinan“ gekk framar vonum

Föstudagskvöldið 24. nóvember síðastliðið var þétt setið í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þá var búið að bjóða öllum konum á Snæfellsnesi í bingó. Það var Valgerður Helga Ísleifsdóttir sem stóð fyrir viðburðinum og rann allur ágóði til Krabbameinsfélags Snæfellsness. „Hugmyndin kom eitt októberkvöld þegar ég var að spila bingó með fjölskyldunni minni,“ segir Valgerður í stuttu spjalli…Lesa meira

true

Rjómabúið á Erpsstöðum komið á söluskrá

Bjóða til sölu búrekstur á tveimur samliggjandi jörðum Athygli vekur að undanfarið hefur fjölgað talsvert bújörðum á söluskrá. Ástæður geta verið margþættar. Meðal þeirra jarða sem nýverið komu á söluskrá hjá Magnúsi Leópoldssyni hjá Fasteignamiðstöðinni eru samliggjandi jarðirnar Erpsstaðir og Þórólfsstaðir í Dalasýslu. Þar er nú rekið myndarlegt kúabú, heimavinnsla á mjólk og móttaka ferðafólks.…Lesa meira

true

Gefur út bókina Höllin á hæðinni í samstarfi við Storytel

Borgfirðingurinn Sigrún Elíasdóttir gaf á dögunum út hljóðbók í samstarfi við Storytel en hún hefur áður gefið út barnabækur og kennslubækur ásamt einni ævisögu sem hún skrifaði um afa sinn. Hún heldur einnig úti hlaðvarpinu Myrka Ísland sem m.a. er aðgengilegt á Storytel en ákvað hún að forvitnast um bókaútgáfu hjá fyrirtækinu sem endaði með…Lesa meira

true

Starfshópur á að efla samfélagið í Dalabyggð

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem er falið það hlutverk að vinna tillögur til ráðherra um framgang þeirra mála í Dalabyggð, sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins, með það að markmiði að efla samfélagið. Eiga tillögur starfshópsins m.a. að snúa að jarðhitaleit, aukinni orkuöflun og flutningskerfi raforku. Jafnframt verði hugað að…Lesa meira

true

Húsnæði til kjúklingaeldis tekið í notkun í Miðskógi

Samstarfssamningur var undirritaður í Sælureitnum Árbliki þriðjudaginn 11. apríl síðasliðinn um uppbyggingu kjúklingaeldishúss í Miðskógi í Dölum. Bændurnir Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Guðrún Esther Jónsdóttir gerðu þar samning við Reykjagarð hf. sem er dótturfélag Sláturfélags Suðurlands. Nú er tæplega 900 fermetra eldishús risið en þar verður alinn kjúklingur frá eins dags aldri og þar til…Lesa meira

true

Með laus börn í bifreið

Afskipti voru höfð af um 20 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Nokkrir ökumenn voru einnig kærðir vegna beltisleysis og afskipti höfð af ökumönnum með laus börn í bifreiðinni. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist hann einnig sviptur ökuréttindum. Tvær bílveltur komu inn…Lesa meira

true

Þúsundasti rampurinn kominn

Stórum áfanga var náð í verkefninu Römpum upp Ísland nú á dögunum þegar rampur númer 1000 var reistur við Hitt Húsið, miðstöð ungs fólks í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að samfélaginu og stuðla þannig að auknu jafnrétti. Stefnt er að því að byggja 1.500 rampa fyrir 11. mars 2025, en upphaflega…Lesa meira

true

Formaðurinn bar sigur úr býtum í aðaltvímenningi

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi. Keppnin stóð yfir í fjögur kvöld en þrír bestu árangrar giltu til verðlauna. Fyrir lokakvöldið var ljóst að stefndi í spennandi úrslit þar sem að minnsta kosti fimm pör gátu hreppt gullið. Úrslitin urðu þau að Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson höfðu sigur, með 177,6 stigum. Í öðru sæti,…Lesa meira