
Rampur númer 1000 var settur upp við Hitt Húsið, miðstöð ungs fólks í Reykjavík. Ljósm. Stjórnarráðið
Þúsundasti rampurinn kominn
Stórum áfanga var náð í verkefninu Römpum upp Ísland nú á dögunum þegar rampur númer 1000 var reistur við Hitt Húsið, miðstöð ungs fólks í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að samfélaginu og stuðla þannig að auknu jafnrétti. Stefnt er að því að byggja 1.500 rampa fyrir 11. mars 2025, en upphaflega var ætlunin að reisa þúsund rampa fyrir árslok 2024.