Fréttir

true

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi

Fyrirtækið Running Tide hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki hér á landi og hættir þar starfsemi. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins greindi í vikunni frá því á Linkedin síðu sinni að fyrirtækið væri þó ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Vísir.is greindi fyrst…Lesa meira

true

Þau fara fyrir Vesturland á Landsmót hestamanna 2024

Sameiginlega úrtaka vestlenskra hestamannafélaga fyrir Landsmót hestamanna, sem fram fer í Reykjavík dagana 1.-7. júlí, fór fram í Borgarnesi helgina 8. og 9. júni. Skráning í úrtöku var óvenju dræm að þessu sinni, en það fer eftir félagafjölda hvað hvert félag má senda marga fulltrúa í hvern flokk á landsmóti. Borgfirðingur má þannig senda fjóra,…Lesa meira

true

Fleiri við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda

Á vefsíðu Hagstofu Íslands kemur fram að á skólaárinu 2023-2024 hafi 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskóla verið án kennsluréttinda en hlutfallið hefur ekki verið hærra frá árinu 2002. Hlutfallslega fleiri karlar en konur voru án réttinda en yfir 26,9% þeirra voru án réttinda á meðan 16,9% kvenna voru án réttinda. Alls voru 9.475 starfsmenn…Lesa meira

true

Búist við að erfitt ferðasumar fari í hönd

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru skráðar gistinætur í apríl mánuði á Íslandi þrettán prósentum færri en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að komum ferðamanna til landsins hafi fjölgað um sex prósent fyrstu fjóra mánuði ársins. Á mælaborði Ferðamálastofu má sjá að heildarfjöldi hótelherbergja á Vesturlandi og Vestfjörðum í apríl var 920 talsins og var…Lesa meira

true

Við lifum lífinu í lausnum en ekki vandamálum

Rætt við mæðginin Guðrúnu Helgu Árnadóttur og Jón Árna Gylfason um líf ungs afreksíþróttamanns Jón Árni Gylfason er 16 ára afreksíþróttamaður í Borgarnesi en hann hefur verið valinn í U-16 ára landslið Íslands í körfuknattleik, sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Finnlandi nú í byrjun júlí og keppir síðar á Evrópumóti í Makedóníu í ágúst.…Lesa meira

true

Meirihluti nefndar samþykkti mælimastur á Grjóthálsi

Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar hefur samþykkt að lögð verði fram drög að nýju deiliskipulagi fyrir mælimastur fyrir vindorkuver á Grjóthálsi. Deiliskipulagið tekur til uppsetningar á tímabundnu mælimastri til vindrannsókna og er unnið af verkfræðistofunni Cowi. Í forsendum deiliskipulags kemur fram að það sé unnið fyrir hönd eigenda jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í…Lesa meira

true

Sólarhringsopnun grenndarstöðvar í Borgarnesi

Gámar fyrir grenndarstöð hafa nú verið settir á móttökustöð fyrir sorp á Sólbakka í Borgarnesi, en frágangi á þeim að utan er ekki lokið. Hægt verður frá og með morgundeginum, 14. júní, að byrja að nota grenndarstöðina allan sólarhringinn fyrir eftirfarandi úrgangsflokka: Plast umbúðir, textíl, glerumbúðir, málmumbúðir, pappa/pappír, bylgjupappa, almennt sorp, kaffihylki, lítil raftæki og…Lesa meira

true

Bjarni Guðmann til Stjörnunnar

Körfuknattleiksmaðurinn Bjarni Guðmann Jónsson úr Borgarnesi er genginn til liðs við Stjörnuna í Garðabæ. Karfan.is greindi frá og sagði að Bjarni hafi gert tveggja ára samning við Garðbæinga en hann hefur verið í Bandaríkjunum síðastliðin ár í Fort Hays State University þar sem hann stundaði nám og spilaði körfubolta við góðan orðstír. Bjarni er uppalinn…Lesa meira

true

Stærsta framkvæmd Dalabyggðar frá upphafi

Í gær var undirritaður samningur Dalabyggðar við Eykt ehf. um byggingu íþróttamannvirkja í Búðardal. Einnig var skrifað undir samning við Eflu vegna umsjónar og verkeftirlits með verkinu. Loks var skóflustunga tekin að mannvirkjunum. Þessi dagur var valinn í ljósi þess að nú eru rétt 30 ár frá því sveitarfélagið Dalabyggð varð til. Verkið felst í…Lesa meira

true

Ný íbúakönnun landshlutanna gefin út

Hamingja íbúa mest í Skagafirði, Snæfellsnesi og á Héraði Hamingja íbúa í Skagafirði, á Snæfellsnesi og á Héraði mælist mest á landinu í nýrri íbúakönnun landshlutanna. Íbúar Stranda og Reykhóla ásamt Vestur-Húnavatnssýslu voru óhamingjusamastir. Í könnuninni er afstaða þátttakenda til eigin hamingju og almennrar ánægju með þjónustu sveitarfélagsins þar sem þeir búa dregin saman. Þá…Lesa meira