Þannig gæti ásýnd vindmyllugarðs orðið frá Grábrók séð, ef til slíkrar framkvæmdar kemur. Uppsetning mælimasturs til tveggja ára tryggir ekki á neinn hátt að af slíkum framkvæmdum verður, en upplýsingum um vindinn verður safnað. Ljósm. Matsáætlun á vef Skipulagsstofnunar.

Meirihluti nefndar samþykkti mælimastur á Grjóthálsi

Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar hefur samþykkt að lögð verði fram drög að nýju deiliskipulagi fyrir mælimastur fyrir vindorkuver á Grjóthálsi. Deiliskipulagið tekur til uppsetningar á tímabundnu mælimastri til vindrannsókna og er unnið af verkfræðistofunni Cowi. Í forsendum deiliskipulags kemur fram að það sé unnið fyrir hönd eigenda jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð og gerir ráð fyrir tímabundinni uppsetningu á mælimastri á Grjóthálsi, en unnið er að undirbúningi vindorkugarðs þar. Hluti af undirbúningi verkefnisins felist í að safna upplýsingum og því er þörf á að reisa mælimastur til að mæla vind í tvö ár en það yrði tekið niður aftur að þeim tíma liðnum.