Bjarni Guðmann ásamt Einari Karli Birgissyni, formanni Stjörnunnar. Ljósm. karfan.is

Bjarni Guðmann til Stjörnunnar

Körfuknattleiksmaðurinn Bjarni Guðmann Jónsson úr Borgarnesi er genginn til liðs við Stjörnuna í Garðabæ. Karfan.is greindi frá og sagði að Bjarni hafi gert tveggja ára samning við Garðbæinga en hann hefur verið í Bandaríkjunum síðastliðin ár í Fort Hays State University þar sem hann stundaði nám og spilaði körfubolta við góðan orðstír. Bjarni er uppalinn í Skallagrími en spilaði síðast með þeim grænklæddu veturinn 2018-2019.