Ungir íþróttagarpar úr Dölum tóku fyrstu skóflustungurnar að íþróttamiðstöðinni. Ljósm. Skessuhorn/hig

Stærsta framkvæmd Dalabyggðar frá upphafi

Í gær var undirritaður samningur Dalabyggðar við Eykt ehf. um byggingu íþróttamannvirkja í Búðardal. Einnig var skrifað undir samning við Eflu vegna umsjónar og verkeftirlits með verkinu. Loks var skóflustunga tekin að mannvirkjunum. Þessi dagur var valinn í ljósi þess að nú eru rétt 30 ár frá því sveitarfélagið Dalabyggð varð til.