Fréttir

true

Skagamenn komnir í efri hlutann eftir sigur á KA

KA og ÍA áttust við á laugardaginn í Bestu deild karla í knattspyrnu og var leikurinn á Greifavellinum á Akureyri. Það er óhætt að segja að það hafi verið fjör í fyrri hálfleik því öll fimm mörk leiksins voru skoruð í honum. Heimamenn komust yfir eftir tæpan stundarfjórðung þegar Bjarni Aðalsteinsson skaut föstu skoti á…Lesa meira

true

Björgunarmiðstöð Brákar formlega vígð í Borgarnesi

Það var margt um manninn þegar vígsla nýju björgunarmiðstöðvarinnar að Fitjum 2 í Borgarnesi fór fram í gær. Húsið er nú fullbúið að innan sem utan en einungis frágangur eftir á lóð. Formleg dagskrá hófst með ýmsum ávörpum, þar sem farið var yfir sögu björgunarsveitarinnar Brákar, gjafir voru afhentar, hamingjuóskum var komið á framfæri og…Lesa meira

true

Varmalandsdagar verða um miðjan júní

Helgina 15. og 16. júní næstkomandi verða Varmalandsdagar haldnir í annað sinn á Varmalandi í Stafholtstungum. Að sögn Vilhjálms Hjörleifssonar á hátíðin rætur sínar að rekja til Hollvinafélags Varmalands sem stofnað var árið 2020. „Hvatinn að hátíðinni var í upphafi að halda hátíð til að kynna Varmaland betur og fá gesti til að njóta þess…Lesa meira

true

Búið að loka póstafgreiðslunni í Grundarfirði

Starfsmenn Póstsins voru önnum kafnir við að setja upp nýtt og stærra póstbox í Grundarfirði síðasta fimmtudag. Póstafgreiðslunni sem verið hefur í Kjörbúðinni var lokað föstudaginn 31. maí. Nú þarf að notast við „mínar síður“ hjá Póstinum og svo póstboxið til að senda og taka á móti sendingum framvegis.Lesa meira

true

Fimmtán fleiri teknir í læknanám við HÍ

Ríflega 400 manns hafa skráð sig í inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði við Háskóla Íslands sem fara fram dagana 6. og 7. júní næstkomandi. Nemendum sem teknir verða inn í læknisfræði fjölgar um 15 milli ára. „Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði hafa verið haldin um langt árabil og frá því á síðasta ári hafa…Lesa meira

true

Bílás orðinn söluaðili BL

Síðastliðinn laugardag tók Bílasalan Bílás á Akranesi formlega við söluumboði fyrir bílaumboðið BL. Meðal þeirra bíltegunda sem um ræðir eru bílar frá Nissan, Renault, Dacia, Subaru, Isuzu, Hyundai og MG. Bílás mun nú bjóða viðskiptavinum sínum á Akranesi og Vesturlandi öllu upp á nýja og notaða bíla frá BL. Alexander Þórsson eigandi Bíláss kveðst afar…Lesa meira

true

Ferðamálastofa hvetur til þess að ferðamönnum verði kynnt slæmt veðurútlit

Ferðamálastofa hefur sent orðsendingu til allra sem eru í samskiptum við ferðafólk. Þeir eru hvattir til að upplýsa viðskiptavini um slæm veðurskilyrði frá og með morgundeginum, mánudag. (English below) „Líkt og fram hefur komið í fréttum þá er spáð óvenju erfiðum veðurskilyrðum frá og með seinnipart mánudags og fram eftir vikunni. Spáð er miklum vindi…Lesa meira

true

Vígja nýja björgunarmiðstöð í dag

Í dag klukkan 14 býður Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi íbúum og nærsveitungum til vígsluathafnar á nýju björgunarmiðstöðinni að Fitjum 2 í Borgarnesi. Stutt athöfn verður klukkan 14 en að henni lokinni boðið upp á léttar kaffiveitingar og skoðun um húsið. Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin fyrir fimm árum, í lok mars 2019, en meðfylgjandi…Lesa meira

true

Tveir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín

Dagskrá sjómannadagsins á Akranesi hófst í morgun kl. 11 með messu í Akraneskirkju. Þar voru tveir eldri sjómenn heiðraðir fyrir störf sín til sjós. Það voru þeir Eiríkur Dalmann Óskarsson og Páll Guðjón Hannesson. Að messu lokinni var gengið á Akratorg og blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna á torginu. F.v. eru séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur,…Lesa meira

true

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins

Þjóðin gekk að kjörborðinu í gær og valdi sér forseta. Tólf voru í framboði, hafa aldrei verið fleiri. Niðurstaðan varð óvænt miðað við skoðanakannanir, en um leið mjög afgerandi. Halla Tómasdóttir hafði verið í nær stöðugri fylgisaukningu og var á endanum kosin forseti með 34,3% atkvæða og hlaut hún flest atkvæði í öllum sex kjördæmum…Lesa meira