Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins

Þjóðin gekk að kjörborðinu í gær og valdi sér forseta. Tólf voru í framboði, hafa aldrei verið fleiri. Niðurstaðan varð óvænt miðað við skoðanakannanir, en um leið mjög afgerandi. Halla Tómasdóttir hafði verið í nær stöðugri fylgisaukningu og var á endanum kosin forseti með 34,3% atkvæða og hlaut hún flest atkvæði í öllum sex kjördæmum landsins. Næstmest fylgi hlaut Katrín Jakobsdóttir, eða 25,2%. Í þriðja sæti varð Halla Hrund Logadóttir með 15,5%, Jón Gnarr fjórði með 10,2%, Baldur Þórhallsson fimmti með 8,3% og Arnar Þór Jónsson sjötti með 5,1%. Sex aðrir frambjóðendur fengu samanlagt undir 2% fylgi.

Skoðanakannanir sem gerðar voru vikurnar fyrir kosningar höfðu sýnt mikla hreyfingu fylgis. Halla Tómasdóttir var í þeim sífellt að vinna á forskot sem þær höfðu haft Katrín Jakobsdóttir og í byrjun maí Halla Hrund Logadóttir. Miðað við könnun sem gerð var daginn fyrir kjördag, en var ekki birt fyrr en kjörstöðum hafði verið lokað, var ljóst að stór hluti kjósenda ákvað daginn fyrir kjördag og jafnvel í kjörklefanum að kjósa „taktíst“ eins og það er kallað, völdu að kjósa Höllu Tómasdóttur sem næstbesta kostinn. Það var svo á kostnað fylgis sem einkum Baldur Þórhallsson og Halla Hrund Logadóttir höfðu mælst með dagana og vikurnar fyrir sjálfan kjördaginn. Engu að síður rak Halla Tómasdóttir kröftuga kosningabaráttu, kom vel fyrir í kappræðum og ekki síst þakkar hún sjálf árangur sinn að hafa náð til ungra kjósenda með þeim miðlum sem þeir nota.

Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta af Guðna Th. Jóhannessyni 1. ágúst í sumar en í kosningunum 2016 varð Halla í öðru sæti, hlaut rúm 27% atkvæða en Guðni um 39%. Hún er þannig fyrsti frambjóðandinn í lýðveldissögunni til að ná kjöri sem forseti eftir að hafa mistekist það í fyrstu tilraun.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti Íslands. Hún er hér ásamt fjölskyldu sinni. F.v. Tómas Bjartur, Halla, Auður Ína og Björn Skúlason.

En hver er Halla?

Halla Tómasdóttir er fædd 11. október 1968. Hún er dóttir Kristjönu Sigurðardóttur þroskaþjálfa og Tómasar Þórhallssonar pípulagningameistara, en hann lést árið 2008. Halla á tvær systur sem báðar starfa við leikskóla. Halla er gift Birni Skúlasyni og eiga þau börnin Tómas Bjart, 22 ára og Auði Ínu sem er tvítug. Börnin stunda bæði háskólanám í Bandaríkjunum líkt og móðir þeirra gerði.

Halla hefur BS gráðu í viðskiptafræði frá Auburn háskólanum í Montgomery í Alabama og MBA gráðu frá Thunderbird School of Global Management í Arizona. Hún kom að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík, var framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs um skeið en lét af störfum þar til að taka þátt í stofnun Auðar Capital. Halla ólst upp á Kársnesi í Kópavogi og á ættir að rekja til Skagafjarðar og Vestfjarða. Hún hefur undanfarin sex ár verið forstjóri B Team, samtaka stofnuðum af Richard Branson stofnanda Virgin Group og Jochen Zeitz fyrrverandi forstjóra Puma. Hlutverk þeirra samtaka hefur Halla sagt vera að uppfæra viðmiðin og nálgunina sem höfð eru í viðskiptum og í efnahagslífinu. Björn eiginmaður hennar rekur fyrirtækið just Björn sem framleiðir og markaðssetur norrænar náttúru- og heilsuvörur.