Samningurinn um söluumboðið var nýverið undirritaður. Hér eru þeir Alexander Þórsson eigandi Bíláss og Benedikt Emilsson verkefnastjóri fyrirtækjalausna hjá BL að handsala samninginn.

Bílás orðinn söluaðili BL

Síðastliðinn laugardag tók Bílasalan Bílás á Akranesi formlega við söluumboði fyrir bílaumboðið BL. Meðal þeirra bíltegunda sem um ræðir eru bílar frá Nissan, Renault, Dacia, Subaru, Isuzu, Hyundai og MG. Bílás mun nú bjóða viðskiptavinum sínum á Akranesi og Vesturlandi öllu upp á nýja og notaða bíla frá BL. Alexander Þórsson eigandi Bíláss kveðst afar ánægður með samninginn. „Þessi samningur við BL breytir afar miklu fyrir okkur. Við getum nú boðið fleiri bíltegundir og aukna þjónustu til viðskiptavina okkar. Bílás hætti nýverið sem umboðsaðili fyrir Öskju og því er þetta kærkominn samningur,“ sagði Alexander. Aðspurður segir hann að rekstur bílasölunnar hafi gengið mjög vel að undanförnu, en þeir eru tveir sem starfa þar, en auk hans er Jón Haukur Pálmason sölumaður nýrra og notaðra bíla hjá Bílás.

Bílás orðinn söluaðili BL - Skessuhorn