Tveir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín

Dagskrá sjómannadagsins á Akranesi hófst í morgun kl. 11 með messu í Akraneskirkju. Þar voru tveir eldri sjómenn heiðraðir fyrir störf sín til sjós. Það voru þeir Eiríkur Dalmann Óskarsson og Páll Guðjón Hannesson. Að messu lokinni var gengið á Akratorg og blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna á torginu. F.v. eru séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur, Eiríkur Dalmann, Páll Guðjón og Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA.

Tveir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín - Skessuhorn