
Vigdís Ósk Viggósdóttir formaður, ávarpar gesti. Ljósmyndir: hig
Björgunarmiðstöð Brákar formlega vígð í Borgarnesi
Það var margt um manninn þegar vígsla nýju björgunarmiðstöðvarinnar að Fitjum 2 í Borgarnesi fór fram í gær. Húsið er nú fullbúið að innan sem utan en einungis frágangur eftir á lóð. Formleg dagskrá hófst með ýmsum ávörpum, þar sem farið var yfir sögu björgunarsveitarinnar Brákar, gjafir voru afhentar, hamingjuóskum var komið á framfæri og farið var yfir byggingarsögu nýja hússins. Að því loknu afhenti byggingarnefnd hússins Vigdísi Ósk Viggósdóttur formanni sveitarinnar lyklavöldin. Séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir steig svo upp í pontu og blessaði húsið.