
Varmalandsdagar verða um miðjan júní
Helgina 15. og 16. júní næstkomandi verða Varmalandsdagar haldnir í annað sinn á Varmalandi í Stafholtstungum. Að sögn Vilhjálms Hjörleifssonar á hátíðin rætur sínar að rekja til Hollvinafélags Varmalands sem stofnað var árið 2020. „Hvatinn að hátíðinni var í upphafi að halda hátíð til að kynna Varmaland betur og fá gesti til að njóta þess sem staðurinn hafi upp á að bjóða. Litið var til þeirrar sérstöðu sem staðurinn hefur og þar skipa skólarnir tveir; barnaskóli og húsmæðraskóli, stóran sess. Þó að húsmæðraskólinn sé ekki enn starfræktur, þá hefur saga hans haft mikil áhrif á staðinn og þá sem í honum voru,“ segir Vilhjálmur.