Vígja nýja björgunarmiðstöð í dag

Í dag klukkan 14 býður Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi íbúum og nærsveitungum til vígsluathafnar á nýju björgunarmiðstöðinni að Fitjum 2 í Borgarnesi. Stutt athöfn verður klukkan 14 en að henni lokinni boðið upp á léttar kaffiveitingar og skoðun um húsið.

Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin fyrir fimm árum, í lok mars 2019, en meðfylgjandi mynd var tekin við það tilefni.

Vígja nýja björgunarmiðstöð í dag - Skessuhorn