Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni

Ferðamálastofa hvetur til þess að ferðamönnum verði kynnt slæmt veðurútlit

Ferðamálastofa hefur sent orðsendingu til allra sem eru í samskiptum við ferðafólk. Þeir eru hvattir til að upplýsa viðskiptavini um slæm veðurskilyrði frá og með morgundeginum, mánudag. (English below)

„Líkt og fram hefur komið í fréttum þá er spáð óvenju erfiðum veðurskilyrðum frá og með seinnipart mánudags og fram eftir vikunni. Spáð er miklum vindi og snjókomu á fjallvegum (einkum Norðan- og Austanlands) og hálendinu sem mun skapa krefjandi aðstæður, sérstaklega fyrir þá sem eru ekki vanir íslenskum aðstæðum.  Við hvetjum ykkur öll sem eruð í samskiptum við ferðafólk að tryggja öryggi og vellíðan viðskiptavina ykkar. Við biðjum ykkur að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til að upplýsa og undirbúa ferðalanga fyrir þau erfiðu veðurskilyrði sem spáð er.

Mikilvæg atriði til að upplýsa viðskiptavini um:

Nr. 1 Viðvörun um slæmt veður: Upplýsið viðskiptavini um að spáð er miklum vindi og snjókomu og leggið áherslu á mögulega áhættu og nauðsyn varúðar. Sérstaklega þarf að huga að þeim sem stefna á gönguferðir og aðra útivist.

Nr. 2 Forðast fjallvegi: Ráðleggið viðskiptavinum að forðast að ferðast á fjallvegum á þessu tímabili þar sem skilyrðin verða sérstaklega erfið fyrir ökutæki, ekki síst þau sem taka á sig mikinn vind.

Nr. 3 Sækja sér upplýsingar: Biðjið viðskiptavini að fylgjast reglulega með vef Vegagerðarinnar og staðbundnum fréttum fyrir nýjustu veðurspár og aðstæður á vegum.

Nr 4. Undirbúningur fyrir neyðartilvik: Gangið úr skugga um að viðskiptavinir hafi meðferðis mat, vatn og hlý föt, og að þeir viti hvernig á að hafa samband við neyðaraðila ef nauðsyn krefur.

Nr 5. Helstu upplýsingasíður:

o          Vegagerðin

o          www.safetravel.is

o          Veðurstofan

Hlutverk ykkar:

•          Upplýsið fólk um aðstæður og veðurspár: Ræðið við viðskiptavini ykkar áður en þeir leggja af stað og farið yfir veðurspá og öryggisráðstafanir.

•          Dreifing upplýsinga: Vísið þeim á staði þar sem þeir geta sótt sér upplýsingar um væntanleg veðurskilyrði og öryggisráð.

•          Þjónusta við viðskiptavini: Bjóðið upp á aðstoð við að skipuleggja öruggari ferðaleiðir og bóka viðeigandi farartæki.

Með því að grípa til þessara aðgerða getið þið hjálpað til við að tryggja viðskiptavinum ykkar öruggari og ánægjulegri upplifun á Íslandi þrátt fyrir erfið veðurskilyrði. Samvinna ykkar og fyrirbyggjandi samskipti eru lykilatriði til að draga úr áhættunni sem fylgir þessum slæmu skilyrðum sem nú er spáð.“

-----------------------------------------------------------------------------------------------

Advisory for Tourism Operators and all those who are in contact with travelers: Inform Your Clients about Severe Weather Conditions from Monday June 3rd

We are writing to inform you about the severe weather conditions expected in Iceland from Monday afternoon, June 3rd. Heavy winds and snowfall on mountain roads in The North, East and in the highland are anticipated to create extremely challenging conditions, particularly for those unfamiliar with Iceland's unique climate.

We kindly ask all those who are in contact with travelers to take proactive measures to inform and prepare your clients for the upcoming adverse weather conditions.

Key Points to Communicate to Clients:

•          Severe Weather Alert: Inform your clients about the forecasted heavy winds and snow, emphasizing the potential risks and the need for caution. People planning outdoor activities and hikes are advised to review their plans and monitor weather forecasts and warnings.

•          Avoidance of Mountain Roads: Advise clients to avoid traveling on mountain roads during this period, as the conditions will be particularly hazardous for normal vehicles.

•          Suitable Vehicle Recommendations: Encourage those who must travel to use four-wheel drive vehicles equipped with winter tires, and to check their vehicle’s readiness for winter conditions.

•          Stay Informed: Suggest clients regularly check the Icelandic Road and Coastal Administration (IRCA) website and other reliable sources for the latest weather updates and road conditions.

•          Emergency Preparedness: Ensure clients have emergency supplies, including food, water, and warm clothing, and understand how to contact local emergency services if needed.

•          Monitor Weather Updates: Stay informed about the latest weather updates and road conditions through reliable sources.

o          The Icelandic Road and Coastal Administration (IRCA) website

o          SafeTravel www.safetravel.is

o          Icelandic Met Office

o          and local news outlets provide regular updates.

Your Role:

•          Pre-Trip Briefings: Conduct briefings for clients before their trips, covering the weather forecast and safety precautions.

•          Distribute Information: Provide written materials or digital communications detailing the expected weather conditions and safety advice.

•          Customer Support: Offer assistance in planning safer travel routes, booking suitable vehicles, and finding alternative activities that do not involve risky travel.

By taking these steps, you can help protect your clients and ensure they have a safer, more enjoyable experience in Iceland despite the challenging weather. Your cooperation and proactive communication are crucial in mitigating the risks associated with these severe conditions.

Thank you for your attention to this important matter and for your ongoing commitment to safety.

Best regards,

The Icelandic Tourist Board

Ferðamálastofa hvetur til þess að ferðamönnum verði kynnt slæmt veðurútlit - Skessuhorn