Fréttir

true

Mannbjörg þegar strandveiðibátur sökk

Í nótt var manni bjargað úr sjónum eftir að bátur hans sökk um sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Veður var stillt þegar óhappið varð. Viðbragðsaðilar höfðu verið kallaðir út á hæsta forgangi klukkan 02:42 en það var skipstjóri á öðrum strandveiðibáti sem sýndi mikið snarræði og kom kollega sínum til bjargar úr sjónum. Skipbrotsmaðurinn hafði…Lesa meira

true

Mældist á 149 km hraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur en annar þeirra hafði ekið á hús með þeim afleiðingum að skemmdir hlutust af.…Lesa meira

true

Eldri borgarar og Aldan fara í samstarf

Í Borgarbyggð hefur verið unnið að því að auka félagsstarf aldraðra. Á fundi með formönnum félaga eldri borgara og Öldungaráði síðastliðið haust var meðal annars rætt hvað mætti bæta þegar kemur að félagsstarfinu. Margar góðar hugmyndir komu fram og meðal annars hvort hægt væri að koma upp smíðaaðstöðu. Sú hugmynd hefur nú orðið að veruleika…Lesa meira

true

Óska eftir tillögum um bæjarlistamann Akraness

Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Fram kemur á vef bæjarins að menningar- og safnanefnd óskar nú eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness fyrir árið 2024. Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Fólk er hvatt til að kynna sér…Lesa meira

true

Alltaf fílað mikla vinnu

Spjallað við Andra Má Jónsson framreiðslumann sem segist vera millistéttarmaður landsins Enginn á Vesturlandi getur verið jafn orðheppinn þrátt fyrir athyglisbrestinn. Á sama tíma er hann harðduglegur og hnyttinn. Andri Már Jónsson hefur komið sér vel fyrir í Borgarnesi með eiginkonu sinni og tveimur börnum en hann hefur starfað á fjórum vinsælum veitingastöðum á Vesturlandi,…Lesa meira

true

Náttúrufræðistofnun formgerð með lögum

Alþingi samþykkti í gær frumvarp um nýja Náttúrufræðistofnun. Með staðfestingu laganna verða Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fær heitið Náttúrufræðistofnun. Ný Náttúrufræðistofnun fer með þau hlutverk og verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn hafa í dag. „Ný stofnun á að efla faglegt starf…Lesa meira

true

Jóhannes Karl hættur sem aðstoðar landsliðsþjálfari

Knattspyrnusambandið greindi frá því í hádeginu í dag að Jóhannes Karl Guðjónsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla. Þetta kemur á óvart einkum í ljósi þess að mánuður er síðan hann samdi um framlengingu samnings hans við KSÍ til ársloka 2025. Mun Jóhannes Karl taka við þjálfun liðs…Lesa meira

true

Samrunaviðræður Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar

Undanfarna mánuði hafa Samkaup hf. og Skel fjárfestingafélag hf. átt í könnunarviðræðum um fýsileika samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga Skel. Nú hefur verið skrifað undir samkomulag um helstu forsendur fyrir því að hefja formlegt samrunaferli, þar sem Samkaup verður yfirtökufélagið. „Nú hefjast því samningaviðræður um samrunann með það að markmiði að komast að samkomulagi um…Lesa meira

true

Samkaup býður tvö hundruð vörur á lágvöruverði í Búðardal

„Íbúar í Dalabyggð munu frá og með fimmtudeginum 16. maí fá, fyrstir Íslendinga, að prófa nýja viðbót við Samkaupsappið, en með því að velja „þína verslun“ í appinu munu þeir geta fengið um 200 vörur í Krambúðinni í Búðardal á sérstöku lágvöruverði í formi inneignar.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum. „Með því að…Lesa meira

true

Orkan bætir Borgarnesi við með lægsta verðið

Orkan býður nú lægsta verðið í Borgarnesi. „Í dag lækkaði Orkan verðið á Orkustöðinni okkar á Brúartorgi og er hún nú ein af níu sem bjóða okkar allra lægsta verð. Orkan rekur 72 sjálfsafgreiðslu stöðvar um allt land þar sem lögð er áhersla á að einfalda líf viðskiptavina á ferðinni,“ segir í tilkynningu frá Brynju…Lesa meira