Fréttir

true

Fjölskylda Soffa styrkir skíðafélagið í tilefni tímamótanna

Hulda Vilmundardóttir ekkja Soffaníasar Cecilssonar í Grundarfirði, dætur þeirra og fjölskyldur hafa ákveðið, í tilefni þess að hundrað ár eru í dag frá fæðingu Soffa, að styrkja myndarlega við uppbyggingu Skíðasvæðis Snæfellsness. Brátt verður hafist handa við byggingu á nýju aðstöðuhúsi félagsins og mun styrkurinn renna til þess verkefnis. „Í tilefni af þessum tímamótum hafa…Lesa meira

true

Sérstök framkvæmdanefnd skipuð um málefni Grindavíkur

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Í frumvarpinu er lagt til að nefndin fari með stjórn, skipulagningu og samhæfingu aðgerða, tryggi skilvirka samvinnu við sveitarstjórn og opinbera aðila og hafi…Lesa meira

true

100 ár í dag frá fæðingu Soffaníasar Cecilssonar

Árið 1924 þann 3. maí fæddist Soffanías Cecilsson á Búðum í Grundarfirði. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Runólfsdóttir og Cecil Sigurbjarnarson. Hann var einn fimm systkina sem fæddust þar en þau misstu föður sinn í sjóslysi þegar Soffi var ungur. Soffi hóf útgerð 12 ára gamall þegar hann og Bæring bróðir hans keyptu bát. Soffanías…Lesa meira

true

Dagur umhverfisins í Skýjaborg og Heiðarskóla

Miðvikudaginn 24. apríl var haldið upp á Dag umhverfisins í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Það var gert með þeim hætti að hreinsa til í nærumhverfinu og tína rusl. Veðrið lék aldeilis við nemendur og starfsfólk svo aðallega var unnið úti við. Þar var tekið til hendinni og garðurinn aðeins sópaður þar sem mikið af sandi…Lesa meira

true

Skagakonur fengu Grindavík í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag. Formaður KSÍ, Þorvaldur Örlygsson og Hólmfríður Magnúsdóttir, fyrrum landsliðskona, sáu um dráttinn. Skagakonur voru í pottinum og mæta Grindavík á útivelli en þessi lið spila bæði í næstefstu deild, Lengjudeildinni. Það verða þrír Bestu-deildar slagir; Stjarnan tekur á móti Breiðabliki, Tindastóll…Lesa meira

true

Atli hættur sem þjálfari Skallagríms

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Atli Aðalsteinsson hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samninginn þeirra á milli en samningurinn við Atla rann út eftir tímabilið sem nú er nýlokið. Áður hafði Hafþór Ingi Gunnarsson sagt starfi sínu lausu sem aðstoðarþjálfari Atla til þriggja ára. Atli hefur þjálfað meistaraflokk Skallagríms síðan 2019 eða í fjögur…Lesa meira

true

Terra með lægra tilboðið í sorphirðu á Akranesi

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var opnunarskýrsla tilboða lögð fram varðandi sorphirðu fyrir heimili á Akranesi, rekstur á móttökustöð Gámu við Höfðasel og flutning sorps. Fyrirtækið Terra, áður Gámaþjónustan, hefur séð um þessa þjónustu frá árinu 2017 og rann samningurinn um þjónustuna út í lok mars á þessu ári en var framlengdur…Lesa meira

true

Strandveiðar fóru vel af stað í Grundarfirði – Myndasyrpa

Það var mikið líf og fjör á Grundarfjarðarhöfn þegar hver strandveiðibáturinn á fætur öðrum kom til hafnar í gær. Fyrsti dagurinn fór gríðarlega vel af stað og komu allir með skammtinn en alls voru sautján strandveiðibátar sem lönduðu í Grundarfirði. Fóru þeir á sjó á milli klukkan fjögur og sjö um morguninn og síðasti báturinn…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar á ný á Vesturgötu

Þriðjudaginn 23. apríl undirrituðu Akraneskaupstaður og Land og verk ehf. verksamning um framkvæmdir við íþróttahúsið við Vesturgötu og hefur verktaki nú þegar hafið störf við uppbyggingu á íþróttasalnum. Úttekt sem gerð var í september á síðasta ári leiddi meðal annars í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í…Lesa meira