Vænn þorskur hífður uppá bryggu úr lestinni á Þresti SH. Ljósmyndir: tfk

Strandveiðar fóru vel af stað í Grundarfirði – Myndasyrpa

Það var mikið líf og fjör á Grundarfjarðarhöfn þegar hver strandveiðibáturinn á fætur öðrum kom til hafnar í gær. Fyrsti dagurinn fór gríðarlega vel af stað og komu allir með skammtinn en alls voru sautján strandveiðibátar sem lönduðu í Grundarfirði. Fóru þeir á sjó á milli klukkan fjögur og sjö um morguninn og síðasti báturinn var að koma til hafnar rétt eftir klukkan átján. Veiðin fer því vel af stað og gefur vonandi góð fyrirheit fyrir sumarið.

Strandveiðar fóru vel af stað í Grundarfirði - Myndasyrpa - Skessuhorn