
Terra með lægra tilboðið í sorphirðu á Akranesi
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var opnunarskýrsla tilboða lögð fram varðandi sorphirðu fyrir heimili á Akranesi, rekstur á móttökustöð Gámu við Höfðasel og flutning sorps. Fyrirtækið Terra, áður Gámaþjónustan, hefur séð um þessa þjónustu frá árinu 2017 og rann samningurinn um þjónustuna út í lok mars á þessu ári en var framlengdur þar til nýju útboði er lokið.