Gunnar Ingi Gunnarsson sem rær á bát sínum Lauga afa SH frá Rifi var kampakátur eftir stuttan róður og er hér að landa úrvals fiski. Ljósmyndir: AF

Fengu aulafisk nánast við bryggjusporðinn á fyrsta strandveiðideginum – Myndasyrpa

Það var mikið líf í höfnum Snæfellsbæjar í gær þegar strandveiðisjómenn máttu hefja veiðar. Fjölmargir bátar eru nú í Snæfellsbæ en auk heimamanna koma þeir víða af landinu enda stutt á góð fiskimið og fjörðurinn kjaftfullur af fiski. Að sögn hafnarvarðar á Arnarstapa var algjört mokfiskerí hjá bátum sem gera út þaðan og tók það suma þeirra aðeins tvo tíma að ná þessum 774 kílóum sem má koma með að landi á dag. „Blessaður vertu,“ sagði Mási hafnarvörður aðspurður hvort langt væri að sækja fiskinn; „nei, bátarnir voru bara hér við bryggju sporðinn, og þetta var allt aulafiskur,“ bætti hann við og rauk af stað til þess að landa úr næsta báti.

Fengu aulafisk nánast við bryggjusporðinn á fyrsta strandveiðideginum - Myndasyrpa - Skessuhorn