Frá undirritun verksamnings. Frá vinstri: Alfreð Alfreðsson, Anna María Þráinsdóttir, Einar Örn Hallgrímsson, Berglind Guðjónsdóttir, Haraldur Benediktsson, Sigurður Páll Harðarson og Anna Sólveg Smáradóttir. Ljósm. akranes.is

Framkvæmdir hafnar á ný á Vesturgötu

Þriðjudaginn 23. apríl undirrituðu Akraneskaupstaður og Land og verk ehf. verksamning um framkvæmdir við íþróttahúsið við Vesturgötu og hefur verktaki nú þegar hafið störf við uppbyggingu á íþróttasalnum. Úttekt sem gerð var í september á síðasta ári leiddi meðal annars í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í veggjum ofan við áhorfendastúku. Einnig kom fram að loftræstingu salarins var ábótavant og var húsinu þá lokað að undanskildu suðuranddyri, búningsklefum, fimleikahúsi og Þekju.

Framkvæmdir hafnar á ný á Vesturgötu - Skessuhorn