
Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að opnunartími Gámu við Höfðasel verður lengri næstu sex laugardaga eða frá og með 4. maí til 8. júní. Þessi aukna þjónusta er hugsuð fyrir íbúa sem ætla að nýta tækifærið og sinna vorhreingerningu heima hjá sér um helgar. Tillöguna samþykkti skipulags- og umhverfisráð á fundi sínum 29. apríl.…Lesa meira








