
Heiðurshjónin Ólafur Andrés Gíslason og Ragnheiður Ingveldur Skarphéðinsdóttir í Grundarfirði hafa aldrei látið sig vanta á fyrsta maí hátíðarhöld og þetta ár var engin undantekning en þau eru á 94. og 93. aldursári. Ljósm. tfk
Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur
Fyrsti maí var haldinn hátíðlegur um gjörvallt Vesturland í gær í blíðskaparveðri. Sameyki, Kjölur og Verkalýðsfélag Snæfellinga stóðu á Snæfellsnesi fyrir hátíðarhöldum í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ. Saga Kjartansdóttir verkefnisstjóri vinnustaðareftirlits hjá ASÍ var ræðumaður á öllum stöðum og Karl Olgeirsson og Salka Sól fluttu tónlistaratriði. Svo voru tónlistarskólarnir á hverjum stað með atriði. Að dagskrá lokinni var svo boðið upp á kaffihlaðborð á hverjum stað.