
Tillagan hefur áhrif á þrjú deiliskipulög. Ljósm. FB síða GL.
Vilja stækka Garðavöll um níu holur
Síðastliðinn föstudag fór hluti stjórnar og framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi á fund með bæjaryfirvöldum Akraneskaupstaðar. Þar lögðu forsvarsmenn GL fram minnisblað þar sem óskað var eftir samningi um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur. Þetta kemur fram á FB síðu golfklúbbsins Leynis.