
Nansý, Gísli og Lilja taka við styrk á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands/ Ljósm. ssv.is
Þungarokkshátíðin Sátan verður í Stykkishólmi í júní
Dagana 6.-8. júní í sumar verður þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi í fyrsta sinn. Sátan verður þriggja daga þungarokkshátíð þar sem lögð verður áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fremstu þungarokks hljómsveitum Íslands hverju sinni ásamt vel völdum erlendum hljómsveitum. Hópurinn á bak við Sátuna samanstendur af þungarokks unnendum og tónlistarfólki sem hefur verið virkt í íslensku senunni í allt að 30 ár og hefur mikla reynslu af því að halda tónlistarhátíðir og tónleika ásamt almennu hljómsveitarbrölti.