Skólahljómsveit spilaði ljúfa tóna. Ljósmyndir. hig

Lítil Barnamenningarhátíð í Borgarnesi

Í Grunnskóla Borgarness var í dag opinn dagur í tengslum við litlu Barnamenningarhátíðina sem fer fram dagana 2. til 7. maí. Við vekjum athygli á að lítið sérblað um hátíðina fylgir Skessuhorni vikunnar. Nemendur elsta stigs grunnskólans voru í dag með ýmsan varning til sölu sem þeir hafa gert í skólanum og má þar nefna fatnað, leirskálar og bolla, matreiðslubækling og ýmislegt góðmeti sem nemendur hafa bakað í skólanum.

Lítil Barnamenningarhátíð í Borgarnesi - Skessuhorn