Biskupsefnin á kynningarfundi sem haldinn var á Selfossi. Ljósm. kirkjan.is

Síðari umferð biskupskosningar hafin

Á hádegi í dag hófst síðari umferð kosninga til biskups Íslands. Henni lýkur svo á hádegi þriðjudaginn 7. maí. Kosið er milli þeirra sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar sóknarprests í Lindakirkju og sr. Guðrúnar Karls- Helgudóttur sóknarprests í Grafarvogskirkju. Í kjöri til biskups eru þau tvö sem flest atkvæði hlutu í fyrri umferð kosninganna um miðjan apríl. Á kjörskrá eru 2286, þar af 2119 leikmenn og 167 prestar og djáknar. Fram kemur á kirkjan.is að kjörstjórn mun telja atkvæðin og birta niðurstöðuna innan sólarhrings frá því að kosningu lýkur.

Síðari umferð biskupskosningar hafin - Skessuhorn