Fréttir

true

Félagsleg þolmörk ferðaþjónustu könnuð

Vesturland spannar allt litrófið – Akranes og Hvalfjarðarsveit eiga mest inni Í nýlegri íbúakönnun var leitað vísbendinga um hvort þolmörkum sé náð í ferðaþjónustu meðal íbúa vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Hvað finnst þér um fjölda ferðamanna í þinni heimabyggð – og finnst þér að fjöldi ferðamanna í þinni heimabyggð…Lesa meira

true

Íbúðir á Sementsreit vel á veg komnar

Um miðjan maí árið 2022 hófst jarðvinna á vegum Fasteflis ehf. á Sementsreitnum svokallaða á Akranesi. Að sögn Óla Vals Steindórssonar hjá Fastefli gengur verkið vel en um er að ræða byggingu á fyrstu 33 íbúðunum með bílakjallara af 112 íbúða verkefni. „BFU Vesturland er að vinna þetta verkefni á Sementsreit fyrir okkur og var…Lesa meira

true

Landaður afli einungis 60 þúsund tonn í mars

Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að landaður sjávarafli í mars var rúmlega 60 þúsund tonn, sem er 77% minna en í sama mánuði í fyrra. Samdráttur varð í veiðum á nær öllum fisktegundum. Mest munar þó um að engin loðna veiddist í mars þetta árið en hún var meginuppistaða af heildaraflanum í mars í fyrra.…Lesa meira

true

Halda Sambandsþing Norræna félagsins á Akranesi næstkomandi laugardag

Sambandsþing Norræna félagsins á Íslandi verður haldið á Akranesi næstkomandi laugardag. Þingið sitja fulltrúar allra Norrænu félaganna á Íslandi og ráða ráðum sínum og fjalla m.a. um lagabreytingar, störf félagsdeilda um landið, samstarf við systurfélög á Norðurlöndum og önnur þau mál sem efst eru á baugi. Um þessar mundir gegnir Ísland formennsku í Sambandi norrænu…Lesa meira

true

Lánveitingar Byggðastofnunar halda áfram að skapa störf

„Tvö hundruð ný störf hafa skapast á síðustu þremur árum fyrir tilstuðlan lánveitinga Byggðastofnunar. 75 ný störf sköpuðust á landsbyggðinni á árinu 2023 með þessum lánveitingum samanborið við 65 störf sem lánveitingarnar sköpuðu árið 2022 og 60 árið 2021.“ Þetta er meðal þess sem koma mun fram í erindi sem Hrund Pétursdóttir forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar…Lesa meira

true

ÍA og Tindastóll mætast í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í gær. Öll tólf liðin úr Bestu deildinni koma inn í þessari umferð og þá eru tíu lið úr Lengjudeildinni en einu tvö liðin sem komust ekki áfram þar eru Njarðvík og Leiknir. Þrjú lið koma úr 2. deild, fjögur…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir taka gildi á fimmtudaginn

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá og með kl. 8:00 fimmtudaginn 18. apríl 2024, á eftirtöldum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum: 54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi vestur yfir Fróðárheiði og að norðanverðu að 58 Stykkishólmsvegi 574 Útnesvegi 58…Lesa meira

true

Fyrri umferð biskupskosningar lokið – Elínborg datt út

Fyrri umferð kosningar til biskups Íslands fór fram dagana 11.- 16. apríl og voru úrslit kynnt eftir hádegi í dag. Þrjú voru í kjöri og féllu atkvæði þannig að Guðrún Karls Helgudóttir hlaut flest atkvæði eða 839 (45,97%) og Guðmundur Karl Brynjarsson hlaut 513 atkvæði (28,11%). Elínborg Sturludóttir hlaut 465 atkvæði eða 25,48% og fellur…Lesa meira

true

Vel mætt á fund miðbæjarsamtakanna um Akratorg

Um 160 manns mættu á íbúafund sem Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi boðuðu til í Tónbergi á mánudagskvöld. Efni fundarins var átakið sem nefnist „Fyrsta hjálp – ráðhús á Akratorg.“ Fulltrúar flokkanna í bæjarstjórn mættu og svöruðu úr pallborði spurningum fundargesta; þeir Einar Brandsson frá Sjálfstæðisflokki, Ragnar Sæmundsson frá Framsókn með frjálsum og Valgarður Lyngdal Jónsson…Lesa meira

true

Úthlutað úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar

Síðastliðinn sunnudag hélt Minningarsjóður Heimis Klemenzsonar tónleika í Borgarneskirkju. Fram komu Diddú og Óskar Pétursson, einir vinsælustu söngvarar landsins til áratuga. Á tónleikunum úthlutaði stjórn minningarsjóðsins jafnframt styrkjum til efnilegra tónlistarnema úr héraði. Að þessu sinni voru tveir styrkir afhentir. Annars vegar hlaut styrk Ágúst Davíð Steinarsson nemandi á framhaldsstigi í píanóleik í Tónlistarskóla Borgarfjarðar…Lesa meira