
Halda Sambandsþing Norræna félagsins á Akranesi næstkomandi laugardag
Sambandsþing Norræna félagsins á Íslandi verður haldið á Akranesi næstkomandi laugardag. Þingið sitja fulltrúar allra Norrænu félaganna á Íslandi og ráða ráðum sínum og fjalla m.a. um lagabreytingar, störf félagsdeilda um landið, samstarf við systurfélög á Norðurlöndum og önnur þau mál sem efst eru á baugi. Um þessar mundir gegnir Ísland formennsku í Sambandi norrænu félaganna á öllum Norðurlöndum (FNF, Foreningerne Nordens Forbund).