Aðsetur Byggðastofnunar er á Sauðárkróki. Ljósm. Feykir

Lánveitingar Byggðastofnunar halda áfram að skapa störf

„Tvö hundruð ný störf hafa skapast á síðustu þremur árum fyrir tilstuðlan lánveitinga Byggðastofnunar. 75 ný störf sköpuðust á landsbyggðinni á árinu 2023 með þessum lánveitingum samanborið við 65 störf sem lánveitingarnar sköpuðu árið 2022 og 60 árið 2021.“ Þetta er meðal þess sem koma mun fram í erindi sem Hrund Pétursdóttir forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar mun flytja á morgun á ársfundi stofnunarinnar sem haldinn verður í Bolungarvík.

Lánveitingar Byggðastofnunar halda áfram að skapa störf - Skessuhorn