Tónberg var nánast fullsetið á fundinum. Ljósm. gh

Vel mætt á fund miðbæjarsamtakanna um Akratorg

Um 160 manns mættu á íbúafund sem Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi boðuðu til í Tónbergi á mánudagskvöld. Efni fundarins var átakið sem nefnist „Fyrsta hjálp – ráðhús á Akratorg.“ Fulltrúar flokkanna í bæjarstjórn mættu og svöruðu úr pallborði spurningum fundargesta; þeir Einar Brandsson frá Sjálfstæðisflokki, Ragnar Sæmundsson frá Framsókn með frjálsum og Valgarður Lyngdal Jónsson Samfylkingu, sem jafnframt er forseti bæjarstjórnar. Valgarður kynnti áform bæjarstjórnar um byggingu nýs ráðhúss við Mánabraut, eða á svokölluðum Sementsreit. Sagði Valgarður að nú stæðu yfir viðræður um aðra þjónustu í húsi sem byggt yrði á þeim stað sem skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar stendur á nú. Meðal annnars er rætt um að þar verði ýmis önnur þjónusta til húsa og upplýsti hann að viðræður væru í gangi milli heilbrigðisráðuneytisins, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og bæjarfélagsins um að ný heilsugæslustöð gæti mögulega risið þar, en það er gert til að rýma fyrir annarri heilbrigðisstarfsemi á sjúkrahúsinu á Akranesi.

Vel mætt á fund miðbæjarsamtakanna um Akratorg - Skessuhorn