
Kosið verður milli Guðmundar Karls Brynjarssonar og Guðrúnar Karls Helgudóttur. Ljósm. Kirkjan.is
Fyrri umferð biskupskosningar lokið – Elínborg datt út
Fyrri umferð kosningar til biskups Íslands fór fram dagana 11.- 16. apríl og voru úrslit kynnt eftir hádegi í dag. Þrjú voru í kjöri og féllu atkvæði þannig að Guðrún Karls Helgudóttir hlaut flest atkvæði eða 839 (45,97%) og Guðmundur Karl Brynjarsson hlaut 513 atkvæði (28,11%). Elínborg Sturludóttir hlaut 465 atkvæði eða 25,48% og fellur hún því út. Fyrirkomulag við biskupskosningu er þannig að ef enginn frambjóðenda hlýtur hreinan meirihluta atkvæða verður kosið um þá tvo sem efstir standa. Stefnt er að því að síðari umferð kosningarinnar hefjist fimmtudaginn 2. maí kl. 12:00 á hádegi og standi til þriðjudagsins 7. maí kl. 12:00 á hádegi.