Fréttir

true

Pétur tekur við af Bjarnheiði í stjórn SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram á Hilton Reykjavík Nordica síðstliðinn fimmtudag. Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um þrjá meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára ásamt því að kjörinn var formaður.  Á fundinum var Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf., kjörinn formaður SAF til næstu tveggja ára. Tekur Pétur við formennskunni…Lesa meira

true

Vitundarvakning um mikilvægi blaðamennsku

Blaðamannafélag Íslands hefur hrundið af stað vitundarherferð. Markmið hennar er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi blaðamennsku fyrir samfélagið. Lykilskilaboðin sem herferðin byggir á eru: Hlutverk blaðamanna Blaðamenn draga saman upplýsingar, setja hlutina í samhengi og greiða úr óreiðunni.  Þeir koma á framfæri ólíkum sjónarmiðum, setja fram staðreyndir og kanna sannleiksgildi þess sem sagt…Lesa meira

true

Fjölbreyttur markaður stendur nú yfir á Breið – Myndasyrpa

Í dag heldur Matarauður Vesturlands, verkefni á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, matarmarkað í Nýsköpunarmiðstöðinni Breið við Bárugötu á Akranesi. Hlédís Sveinsdóttir heldur utan um skipulagningu og kynningu og ljóst að vel hefur til tekist hjá henni. Framleiðendur víðs vegar af Vesturlandi kynna og selja allskyns góðgæti m.a. fyrir bragðlaukana, en einnig túlípana, ull og…Lesa meira

true

Matsáætlun lögð fram um vindmyllugarð á Grjóthálsi

Fyrirtækið Hrjónur ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir vindorkugarð á Grjóthálsi í Borgarbyggð. Matsáætlunin er unnin af COWI, áður Mannvit, og er nú aðgengileg á Skipulagsgátt. Hægt er að veita umsögn til 22. apríl næstkomandi. Hrjónur ehf hyggst reisa vindorkugarð á Grjóthálsi í Borgarfirði á samliggjandi jörðunum Hafþórsstöðum í Norðurárdal og…Lesa meira

true

Kirkja flutt milli hreppa

Á FB síðunni Gamlar ljósmyndir eru oft birtar áhugaverðar myndir sem gjarnan skapast líflegar umræður um á spjallþráðum. Þessa mynd birti Eyþór Edvardsson í síðustu viku. Þarna má sjá þegar gamla kirkjan á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd var flutt að Vindáshlíð í Kjós þar sem hún stendur enn. Gamla kirkjan að Saurbæ var byggð árið 1878…Lesa meira

true

Fullkomið flotbretti til björgunar á ís og vötnum er nú staðsett í Borgarnesi

Á 75 ára afmæli Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi fékk björgunarsveitin, ásamt Slökkviliði Borgarbyggðar, í hendurnar fullkomið flotbretti til björgunar á ís og vötnum. Aðdragandi að kaupum á flotbrettinu má rekja til útkalls viðbragðsaðila á Vesturlandi 12. desember á síðasta ári, en eftir það fór björgunarsveitin ásamt slökkviliði fram á styrk til Borgarbyggðar og var hann…Lesa meira

true

Forsetinn á ferð við eldstöðvarnar

„Víst er að við hemjum ekki ægimátt náttúruaflanna. Við reynum samt að minnka þann skaða sem þau geta valdið,“ skrifar Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands í færslu á FB síðu sína. Í gær fékk hann að fræðast um gerð varnargarða og lagningu vega yfir nýrunnið hraun í grennd við Grindavík. „Naut ég þar leiðsagnar Jóns…Lesa meira

true

Nemendaferð FVA til RARIK í Borgarnesi

Í gær fóru nemendur 6. annar í rafvirkjun í Fjölbrautaskóla Vesturlands í vettvangsferð til RARIK í Borgarnesi. Að sögn Trausta Gylfasonar deildarstjóra rafiðnadeildar hjá FVA hafði ferðin staðið til í nokkurn tíma en vel var tekið á móti nemunum af starfsmönnum RARIK. Eins og alþjóð veit þá sinnir RARIK dreifingu rafmagns til notenda um allt…Lesa meira

true

Matarmarkaður á Breið á morgun, sunnudag

Sunnudaginn 24. mars heldur Matarauður Vesturlands, verkefni á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, matarmarkað í samstarfi við Breið þróunarfélag á Akranesi. Markaðurinn er haldin í húsnæði Breiðar að Bárugötu 8-10 og er opin frá kl. 11:00 til 17:00. Breið nýsköpunarsetur er staðsett í gamla HB húsinu en þar vinna nú um 100 aðilar að allskonar…Lesa meira

true

Stöðvuðu tímabundin sérstaka þjálfun á hrossum

Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið sérstaka þjálfun á hrossum sem ætluð eru til þátttöku í kvikmyndaframleiðslu. Það var gert vegna alvarlegra atvika sem sjást á myndböndum sem stofnuninni hafa borist og vísbendinga sem komu fram við eftirlit stofnunarinnar fyrir helgi. „Starfsemin verður stöðvuð á meðan ítarlegri rannsókn fer fram og þar til kröfur til úrbóta verða…Lesa meira