Meðfylgjandi ljósmyndir úr ferðinni eru af FB síðu forsetaembættisins.

Forsetinn á ferð við eldstöðvarnar

„Víst er að við hemjum ekki ægimátt náttúruaflanna. Við reynum samt að minnka þann skaða sem þau geta valdið,“ skrifar Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands í færslu á FB síðu sína. Í gær fékk hann að fræðast um gerð varnargarða og lagningu vega yfir nýrunnið hraun í grennd við Grindavík. „Naut ég þar leiðsagnar Jóns Hauks Steingrímssonar jarðverkfræðings. Ég náði að kasta kveðju á nokkra þeirra snillinga sem þarna hafa unnið og þakka fyrir allt þeirra vit og strit að undanförnu.

Forsetinn á ferð við eldstöðvarnar - Skessuhorn