Svipmyndir úr ferðinni tók Trausti Gylfason.

Nemendaferð FVA til RARIK í Borgarnesi

Í gær fóru nemendur 6. annar í rafvirkjun í Fjölbrautaskóla Vesturlands í vettvangsferð til RARIK í Borgarnesi. Að sögn Trausta Gylfasonar deildarstjóra rafiðnadeildar hjá FVA hafði ferðin staðið til í nokkurn tíma en vel var tekið á móti nemunum af starfsmönnum RARIK. Eins og alþjóð veit þá sinnir RARIK dreifingu rafmagns til notenda um allt land. Fyrirtækið í Borgarnesi sinnir hluta af landinu, þ.e. frá Kjósinni, upp allan Borgarfjörð, hálft Snæfellsnes og yfir í Reykhólasveit.

Nemendaferð FVA til RARIK í Borgarnesi - Skessuhorn