
Frá afhendingu flotbrettisins. F.v. Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri, Bjarni Kristinn Þorsteinsson aðstoðar slökkviliðsstjóri, Erlendur Breiðfjörð Magnússon formaður bátaflokks björgunarsveitarinnar Brákar og Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri. Ljósm. hig
Fullkomið flotbretti til björgunar á ís og vötnum er nú staðsett í Borgarnesi
Á 75 ára afmæli Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi fékk björgunarsveitin, ásamt Slökkviliði Borgarbyggðar, í hendurnar fullkomið flotbretti til björgunar á ís og vötnum. Aðdragandi að kaupum á flotbrettinu má rekja til útkalls viðbragðsaðila á Vesturlandi 12. desember á síðasta ári, en eftir það fór björgunarsveitin ásamt slökkviliði fram á styrk til Borgarbyggðar og var hann veittur. Flotbrettið er nú komið í hús, í nýju aðstöðu Brákar á Fitjum 2 í Borgarnesi.