
Vitundarvakning um mikilvægi blaðamennsku
Blaðamannafélag Íslands hefur hrundið af stað vitundarherferð. Markmið hennar er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi blaðamennsku fyrir samfélagið. Lykilskilaboðin sem herferðin byggir á eru:
Hlutverk blaðamanna
Blaðamenn draga saman upplýsingar, setja hlutina í samhengi og greiða úr óreiðunni. Þeir koma á framfæri ólíkum sjónarmiðum, setja fram staðreyndir og kanna sannleiksgildi þess sem sagt er.
Aldrei meiri þörf fyrir blaðamennsku
Aukin pólaríseríng og upplýsingaóreiða gerir það að verkum að aldrei hefur verið meiri þörf fyrir vandaða blaðamennsku til að veita aðhald og greina rétt frá röngu.
Fyrir upplýst samfélag
Íslenskir blaðamenn standa vaktina alla daga, allt árið um kring, upplýsa og spyrja krefjandi spurninga, með hag almennings að leiðarljósi.