
Hér er silast með kirkjuna um Laxárdal. Myndina tók Gunnar Rúnar Ólafsson ljósmyndari og kvikmyndatökumaður.
Kirkja flutt milli hreppa
Á FB síðunni Gamlar ljósmyndir eru oft birtar áhugaverðar myndir sem gjarnan skapast líflegar umræður um á spjallþráðum. Þessa mynd birti Eyþór Edvardsson í síðustu viku. Þarna má sjá þegar gamla kirkjan á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd var flutt að Vindáshlíð í Kjós þar sem hún stendur enn.