Ný stjórn SAF. Rannveig Grétarsdóttir eigandi Eldingar og Akureyri Whale Watching, Björn Ragnarsson forstjóri Icelandia, Erna Dís Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum, Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri Viator ehf. og formaður, Nadine Guðrún Yaghi forstöðumaður samskipta og þjónustu hjá Play, Helgi Már Björgvinsson yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Ragnhildur Ágústsdóttir stofnandi og eigandi Lava Show.

Pétur tekur við af Bjarnheiði í stjórn SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram á Hilton Reykjavík Nordica síðstliðinn fimmtudag. Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um þrjá meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára ásamt því að kjörinn var formaður.  Á fundinum var Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf., kjörinn formaður SAF til næstu tveggja ára. Tekur Pétur við formennskunni af Bjarnheiði Hallsdóttur, framkvæmdastjóra Kötlu-DMI, sem verið hefur formaður SAF frá árinu 2018.

Pétur tekur við af Bjarnheiði í stjórn SAF - Skessuhorn