
Boðið er upp á ógerilsneydda og ófitusprengda mjólk frá Vestri-Reyni. Ljósmyndir: mm
Fjölbreyttur markaður stendur nú yfir á Breið – Myndasyrpa
Í dag heldur Matarauður Vesturlands, verkefni á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, matarmarkað í Nýsköpunarmiðstöðinni Breið við Bárugötu á Akranesi. Hlédís Sveinsdóttir heldur utan um skipulagningu og kynningu og ljóst að vel hefur til tekist hjá henni. Framleiðendur víðs vegar af Vesturlandi kynna og selja allskyns góðgæti m.a. fyrir bragðlaukana, en einnig túlípana, ull og band og sitthvað fleira. Þarna má m.a. smakka fiskibollur unnar úr grjótkrabba, geitaafurðir, unnar og óunnar kjötvörur frá nokkrum framleiðendum, ís og skyr, hvítlaukssalt, andaregg, sápur, brodd, pylsur, hakk, hamborgara og síðast en ekki síst ógerilsneydda og ófitusprengda mjólk. Ungmenni selja svo vöfflur með rjóma.