Þannig gæti ásýnd vindyllugarðsins orðið frá Grábrók séð. Ljósm. Matsáætlunin á vef Skipulagsstofnunar.

Matsáætlun lögð fram um vindmyllugarð á Grjóthálsi

Fyrirtækið Hrjónur ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir vindorkugarð á Grjóthálsi í Borgarbyggð. Matsáætlunin er unnin af COWI, áður Mannvit, og er nú aðgengileg á Skipulagsgátt. Hægt er að veita umsögn til 22. apríl næstkomandi. Hrjónur ehf hyggst reisa vindorkugarð á Grjóthálsi í Borgarfirði á samliggjandi jörðunum Hafþórsstöðum í Norðurárdal og Sigmundarstöðum í Þverárhlíð.

Matsáætlun lögð fram um vindmyllugarð á Grjóthálsi - Skessuhorn