Fréttir

true

Á leið til Spánar í æfingaferð

Á næstu dögum munu drengirnir í þriðja flokki Víkings frá Ólafsvík fara til Salou á Spáni í æfinga- og keppnisferð. Verða nokkrir foreldrar með í för ásamt þjálfara. Auk þess að æfa og keppa við bestu aðstæður þá verður margt annað skemmtilegt í boði fyrir drengina, eins og ferð í skemmtigarð til þess að hressa…Lesa meira

true

Breytingar hjá Tækniborg í Borgarnesi

Síðastliðinn föstudag urðu tímamót í versluninni Tækniborg í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Ómar Örn Ragnarsson kaupmaður hefur sagt skilið við rekstur verslunarinnar en sonur hans, Jón Örn Ómarsson, tekur við í hans stað. Blaðamaður Skessuhorns fór í verslunarleiðangur og hitti fyrir Ómar Örn. „Ég er búinn að vera í þessu bransa síðan 2001 en til að…Lesa meira

true

Góð tíðindi af norsk-íslenskri síld í Barentshafi

Útlit er fyrir að þrír sterkir árgangar af norsk-íslenska síldarstofninum séu að alast upp í Barentshafi um þessar mundir. Þetta eru niðurstöður árlegs vistkerfisleiðangurs í Barentshafi sem er samvinnuverkefni Norðmanna og Rússa og greint er frá m.a. á vef norsku Hafrannsóknastofnunarinnar. Leiðangurinn var farinn á tímabilinu 10. ágúst til 7. október 2023 með þátttöku fjögurra…Lesa meira

true

Einvígi aldarinnar var háð í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag bauð Skákskóli Snæfellsbæjar og Skákskóli Grundarfjarðar, sem Taflfélag Snæfellsbæjar rekur, útvöldum í skákeinvígi þar sem ungt skákfólk skoraði það eldra á hólm. Boðið var fólki sem kann að tefla en er ekki í taflfélaginu.  „Við í taflfélaginu kölluðum þetta einvígi aldarinnar,“ sagði Sigurður Scheving formaður félagsins í samtali við Skessuhorn. „Þetta virkar þannig…Lesa meira

true

Bændur kusu sér nýjan formann BÍ

Úrslit í formannskosningu Bændasamtaka Íslands voru kynnt í hádeginu í dag. Kosningin var rafræn og stóð yfir í tvo undangenga sólarhringa. Kosningarétt höfðu skuldlausir og skráðir félagar í Bændasamtökum Íslands við síðustu áramót, alls 2.428. Tveir voru í kjöri; Gunnar Þorgeirsson garðyrkjubóndi og fráfarandi formaður BÍ og Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi á Suðurlandi. Alls kusu 1.314,…Lesa meira

true

Söngbræður hefja vordagskrá sína með tónleikum í Tónbergi á fimmtudaginn

Nýr undirleikari kynntur til leiks Karlakórinn Söngbræður er að hefja vordagskrá kórsins og er sitthvað á döfinni. Fyrstu tónleikarnir verða í Tónbergi á Akranesi fimmtudagskvöldið 7. mars klukkan 20. Miðar verða seldir við innganginn og kosta 3.000 krónur. Næst á dagskrá kórsins eru tónleikar laugardaginn 16. mars kl. 16 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fimmtudagur 11.…Lesa meira

true

Kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi

Skjálftavirkni við Sýlingarfell á Reykjanesi vegna kvikuhlaups sem hófst um kl. 16 í gær hjaðnaði jafnt og þétt eftir kl. 18 og var að mestu lokið eftir kl 20. Í nýrri frétt Veðurstofunnar segir að gögn bendi til þess að kvikuhlaupið í gær hafi stöðvast við Hagafell. Líkur á því að kvika komi upp í…Lesa meira

true

Lífið væri erfiðara án þeirra

Á Fiskmarkaði Snæfellsbæjar í Ólafsvík mátti í síðustu viku sjá unga skólastráka vera á fullu við að vinna við flokkun og raða fiski í kör. Andri Steinn Benediktsson framkvæmdastjóri fiskmarkaðsins segir í samtali við Skessuhorn að lífið væri talsvert erfiðara nyti þessara drengja ekki við. „Þetta eru hörkudrengir í vinnu og slá ekkert af þrátt…Lesa meira

true

Faxaflóahafnir og Skinney Þinganes hljóta forvarnaverðlaun VÍS

Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent fyrr í vikunni. Verðlaunin hljóta þau fyrirtæki sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst að því að efla öryggisvitund og öryggishegðun innan fyrirtækjanna. Hátækni sjávarútvegsfyrirtækið Skinney-Þinganes hlaut verðlaunin í flokki stærri fyrirtækja og hafnarþjónustufyrirtækið Faxaflóahafnir í…Lesa meira

true

Tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Stykkishólm og Borgarnes

Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur í Stykkishólm og heldur tónleika í íþróttahúsinu fimmtudagskvöldið 7. mars kl. 19.30. „Dagskrá tónleikanna skartar þremur verkum eftir höfuðtónskáld klassíska tímans en auk þess hljóma þrjú hugljúf íslensk lög í flutningi hljómsveitarinnar og sameinaðra kóra á Snæfellsnesi. Kórinn skipa um 80 söngvarar úr Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju, Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju, Karlakórnum Kára, Kirkjukór Ingjaldshólskirkju, Karlakórnum…Lesa meira