
Í byrjun febrúar undirrituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Þorgeir Ólafsson formaður stjórnar Snorrastofu, samning til næstu tveggja ára um áframhaldandi stuðning ráðuneytisins við Snorrastofu í Reykholti. „Snorrastofa rekur fjölbreytta menningarstarfsemi í Reykholti. Á vegum stofnunarinnar eru stundaðar rannsóknir tengdar staðnum, bókmenntum og miðaldafræðum. Í Snorrastofu er bókhlaða, með bæði almennings- og sérfræðibókasafn,…Lesa meira








