Fréttir

true

Æfingar í fullum gangi við Sjúskað Sjobbí Sjóv

Íbúar í Borgarbyggð geta farið að reima á sig leikhússkóna því nú standa yfir stífar æfingar hjá nemendum Menntaskóla Borgarfjarðar, við uppfærslu verksins Rocky Horror Show – sem hefur verið þýtt af nemendum sem „Sjúskað Sjobbí Sjóv.“ Blaðamaður greip Rebekku Magnúsdóttur leikstjóra þar sem hún var að skipuleggja rennsli í Hjálmakletti í Borgarnesi. „Við erum…Lesa meira

true

Líflegar umræður á fundi á Reykhólum um atvinnuþróun og nýsköpun

Síðasta þriðjudag var boðað til undirbúningsfundar að stofnun atvinnu- og uppbyggingarklasa í Reykhólahreppi. Markmiðið með fundinum var að skapa umræðu- og samstarfsvettvang fyrir alla sem áhuga hafa á atvinnuþróun, nýsköpun og annarri uppbyggingu í Reykhólahreppi. Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri framkvæmda og uppbyggingar á vegum Reykhólahrepps, var með framsögu og fór yfir hvað klasastarfsemi gengur út á.…Lesa meira

true

Hægt að sækja um fjárfestingastuðning í nautgriparækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2023-2024 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 31. mars. „Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa. Skilyrði fyrir veitingu…Lesa meira

true

Allt á síðasta snúningi í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms hefur frá því í janúar æft leikritið Allt á síðasta snúningi, eftir Aðalstein Bergdal. Eins og margir þekkja er leikdeildin rekstraraðili félagsheimilisins Lyngbrekku þar sem æfingar fara fram. Frumsýna á verkið á hlaupársdag, fimmtudaginn 29. febrúar klukkan 20:30. Blaðamanni Skessuhorns var boðið á æfingu á leikritinu í gærkvöldi. Ellefu manns eru í…Lesa meira

true

Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefst í dag

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur í sína árlegu hringferð dagana 22. – 27. febrúar.  „Í þessum fyrsta legg hringferðarinnar mun þingflokkurinn funda á 18 stöðum hringinn í kringum landið þar sem fólki gefst tækifæri til að eiga beint og milliliðalaust samtal við þingmenn og ráðherra um þau mál sem helst á brenna. Hringferðin hefst í Reykjanesbæ í…Lesa meira

true

Ritað undir samning um móttöku flóttafólks til sex mánaða

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag var þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks milli Akraneskaupstaðar og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins með gildistíma til loka árs 2024 lagður fram til staðfestingar. Kveður samningurinn á um að sveitarfélagið þjónusti hundrað einstaklinga en sú tala tekur mið að raunfjölda þeirra sem eru nú þegar í þjónustu sveitarfélagsins. Fyrir…Lesa meira

true

Kristinn fékk náttúruverndarviðurkenninguna afhenta

Í gær var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra á ferð um Vesturland. Síðdegis hitti hann m.a. hóp fólks í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar fræddi þjóðgarðsvörður um starfsemina sem þar fer fram. Í framhaldi af fræðslu og umræðum var Kristni Jónassyni bæjarstjóra Snæfellsbæjar afhent Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti fyrir árið 2023. Tilkynnt var um þessa útnefningu 16.…Lesa meira

true

Umhverfisstofnun opnar formlega skrifstofu á Hvanneyri

Það var mikið um dýrðir þegar Umhverfisstofnun Íslands opnaði formlega starfsstöð sína við Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nefndi í ávarpi sínu að eitt af markmiðum sínum í ráðuneytinu væri að fjölga störfum út á landi, enda eru flest verkefni sem hans ráðuneyti er að sinna á…Lesa meira

true

Andlát – Sigurður R Guðmundsson fyrrum skólastjóri

Látinn er Sigurður Reynir Guðmundsson íþróttakennari og fyrrum skólastjóri í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, 93 ára að aldri. Hann var einkum þekktur fyrir söng, kennslu, skólastjórn og leiðsögumennsku. Sigurður fæddist 6. júlí 1930 og ólst upp á Hvanneyri. Faðir hans var Guðmundur Jónsson sem var kennari á Hvanneyri þegar Sigurður fæddist, en síðar skólastjóri við Bændaskólann,…Lesa meira

true

Nemendur í Grunnskóla Borgarness afhentu húllahringi

Nemendur í 2. bekk í Grunnskóla Borgarness kynntu í gærmorgun verkefni sitt í áfanganum textíl, en þau hafa notað rafmagnsrör auk rafmagnslímbands til að útbúa húllahringi. Nemendurnir bjuggu til ellefu stykki af húllahringjum og eru þeir ætlaðir öllum nemendum skólans. Nemendur gáfu stutta kynningu á því hvernig eigi að nota húllahringi og afhentu loks skólastjóra…Lesa meira