Fréttir

true

Skallagrímur tryggði sér oddaleik

Framundan er hreinn úrslitaleikur um sæti í Subway deildinni í körfuknattleik karla eftir að Skallagrímur bar sigurorð af Hamri í fjórðu viðureign liðanna í gær. Bæði hafa þau unnið á sínum heimavöllum. Úrslit í leiknum í gær, sem spilaður var í Fjósinu í Borgarnesi, urðu 91-79 heimamönnum í vil. Oddaleikurinn um sæti í Subway deildinni…Lesa meira

true

Teitur er nýr aðstoðarmaður Ásmundar

Teitur Erlingsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Teitur er fæddur og uppalinn á Brún í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann er með BA próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Teitur starfaði tímabundið sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins frá áramótum og fram í mars. Hann var verkefnisstjóri á skrifstofu Framsóknarflokksins…Lesa meira

true

Dreng komið til bjargar

Um kvöldmatarleytið í gær var björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni kölluð út vegna unglingsdrengs sem var á lítilli bátskænu, áralaus og rak hratt undan vindi út á Laugarvatn. Hann hafði, ásamt nokkrum félögum, verið að leika sér í flæðarmálinu við Fontana böðin, þar sem bátskænan lá hálf upp á landi. Þegar hann stökk upp í bátinn,…Lesa meira

true

Úr safni: Steinunn Einarsdóttir heimsflakkari tekin tali

Á laugardögum birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns sem kom út 20. desember 2017. Hér var rætt við heimsflakkarann Steinunni Einarsdóttur frá Sólbyrgi í Borgarfirði. Fyrir rétt um ári tók Steinunn Einarsdóttir, ung kona úr Borgarfirði, ákvörðun um að hún…Lesa meira

true

Vorverkin á höfninni

Það er þó nokkuð um að vera á höfninni í Grundarfirði þessa dagana en verið er að steypa nýja þekju á eldri hluta hafnarinnar og svo er Köfunarþjónustan ehf að gera við göt á járnþiljum neðansjávar og verða næstu daga við þá vinnu. Svo eru að sjálfsögðu landanir þegar skipin koma til hafnar reglulega.Lesa meira

true

Úr safni: „Ætla mér að ganga keikur inn í sólarlagið”

Á laugardögum birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns, 8. tölublaði 2020 sem kom út 19. febrúar. Hér var rætt við Sævar Þór Magnússon sem var þolandi áralangs eineltis en hefur náð sátt í dag. Hann var kjötiðnaðarmaður að ævistarfi en…Lesa meira

true

Barist um bestu bitana þegar lagt er út fyrir tófu

Þetta skemmtilega myndbrot var tekið upp á vöktunarvél með hræjum sem lögð höfðu verið út fyrir tófu á ónefndum stað í Borgarfirði. Veiðimaðurinn setti upp myndavélarvöktun og hreyfiskynjari lætur hann vita þegar umgangur er á svæðinu. Í þeirri vöktun kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Fleiri en tófan gera sér nefnilega mat úr þessu. Hrafnar og…Lesa meira

true

Viðurkenningar og verðlaun á Skeifudegi nemenda LbhÍ

Skeifudagurinn var að venju haldinn á Mið-Fossum í Andakíl í gær, á sumardaginn fyrsta. Dagurinn hófst á fánareið og ávarpi Helga Eyleifs Þorvaldssonar brautarstjóra. Nemendur í hestafræði sýndu munstursreið áður en nemendur í búfræði sýndu afraksturs vetrarins með tamningatrippi sín undir lýsingu reiðkennara þeirra; Guðbjartar Þórs Stefánssonar frá Skipanesi. Þá komu mæðgurnar Guðrún og Þórdís…Lesa meira

true

Samtal við forsætisráðherra um Sjálfbært Ísland – fundur í Borgarnesi á mánudaginn

Mánudaginn 24. apríl klukkan 16-17:30 mun Katrín Jakobsdóttir halda fund í Hjálmakletti í Borgarnesi. Forsætisráðherra býður þessa dagana til opinna samráðsfunda um landið og fjallar um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.…Lesa meira

true

Hopp hjólin komin til Grundarfjarðar

Fyrr í vikunni fóru Hopp hlaupahjólin að skjóta upp kollinum víðsvegar um Snæfellsnes en það er Hopp Snæfellellsnes sem sér um að reka og viðhalda hjólunum. Þeir Friðjófur Orri Jóhannsson og Benedikt Gunnar Jensson voru á ferðinni síðasta miðvikudag og dreifðu fimmtán hjólum víðsvegar um Grundarfjörð. Hjólaleigan var svo formlega opnuð á sumardaginn fyrsta.Lesa meira