
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar var kampakát er hún leigði fyrsta hopphjólið í gær, á sumardaginn fyrsta. Ljósm. tfk.
Hopp hjólin komin til Grundarfjarðar
Fyrr í vikunni fóru Hopp hlaupahjólin að skjóta upp kollinum víðsvegar um Snæfellsnes en það er Hopp Snæfellellsnes sem sér um að reka og viðhalda hjólunum. Þeir Friðjófur Orri Jóhannsson og Benedikt Gunnar Jensson voru á ferðinni síðasta miðvikudag og dreifðu fimmtán hjólum víðsvegar um Grundarfjörð. Hjólaleigan var svo formlega opnuð á sumardaginn fyrsta.